Própanól Actavis (afskráð apr. 2006)
Própanól er sótthreinsandi lausn, ætluð útvortis til notkunar á húð, áhöldum og innanstokksmunum. Própanól getur drepið flesta sýkla, sveppi og sumar veirutegundir.
Notkun á lyfi
Lyfjaform:
Útvortis lausn.
Venjulegar skammtastærðir:
Lausnin er notuð útvortis eftir þörfum.
Hversu langur tími líður uns verkun kemur fram:
Lyfið byrjar strax að virka.
Verkunartími:
Verkun varir í nokkrar klst.
Þörf á að breyta mataræði meðan lyfið er tekið:
Engin.
Geymsla:
Geymist í lokuðum umbúðum við stofuhita þar sem börn hvorki ná til né sjá.
Ef skammtur gleymist:
Lyfið er venjulega ekki notað að staðaldri.
Hvernig á að hætta töku lyfsins:
Hætta má notkun lyfsins hvenær sem þér hentar.
Ef tekinn er of stór skammtur:
Stórir skammtar útvortis ættu ekki að skapa vanda.
Langtímanotkun:
Própanól er ekki ætlað til langtímanotkunar.
Aukaverkanir
Eins og almennt gildir um lausasölulyf eru aukaverkanir sjaldgæfar þegar farið er eftir reglum um notkun og venjulegar skammtastærðir eru teknar.
Aukaverkun | Tíðni | Leitið til læknis vegna einkenna | Leitaðu strax til læknis | Hættu strax töku lyfs | |||
---|---|---|---|---|---|---|---|
Algeng >1% | Sjaldgæf <1% | Ekki þekkt | Sem eru alvarleg | Í öllum tilvikum | |||
Erting í húð | ![]() |
![]() |
|||||
Þurrkur í húð | ![]() |
![]() |
Milliverkanir
Sjá öll lyf sem geta haft áhrif á
Má ekki nota með
Getur haft áhrif á
Varúð
Læknir sem ávísar lyfinu þarf að vita hvort
- grunur leiki á um þungun
- þú sért með ofnæmi fyrir virka efninu eða einhverju hjálparefnanna
Meðganga:
Engin þekkt áhætta er af notkun lyfsins á meðgöngu.
Brjóstagjöf:
Engin þekkt áhætta er af notkun lyfsins samhliða brjóstagjöf.
Börn:
Venjulegar skammtastærðir.
Eldra fólk:
Venjulegar skammtastærðir.
Akstur:
Við útvortis notkun hefur lyfið ekki áhrif á aksturhæfni.
Áfengi:
Áfengi hefur ekki áhrif á notkun lyfsins.
Íþróttir:
Leyft við æfingar og í keppni.
Annað:
Própanól er u.þ.b. tvöfalt eitraðra en etanól og eitrunareinkenni beggja eru svipuð, eða uppköst og magabólgur.
Nánari upplýsingar
Nánari upplýsingar um lyfið er að finna í SPC texta og í fylgiseðli lyfsins, sem má finna á heimasíðu Sérlyfjaskrá. Ef upplýsingar hér stangast á við þær upplýsingar ber að fara eftir SPC texta lyfsins og/eða fylgiseðli.