Múkósín

Hósta- og kveflyf | Verðflokkur: 0 | Lausasölulyf

Virkt innihaldsefni: Acetýlcýstein

Markaðsleyfishafi: Alvogen | Skráð: 28. ágúst, 2024

Acetýlcýstein minnkar seigju slíms og það verður auðveldara að hósta slíminu upp úr lungum. Múkósín freyðitöflur er notað sem slímleysandi lyf. Verkunarmáti er ekki þekktur þegar lyfið er gefið til inntöku. Lyfið er líka notað til meðferðar á parasetamóleitrunum.


Notkun á lyfi

Lyfjaform:
Freyðitöflur til inntöku.

Venjulegar skammtastærðir:
14 ára og eldri: 400-600mg á dag, í einum skammti eða skipt niður á 2-3 skipti. 5 ára og eldri: 200-400mg á dag, í einum skammti eða skipt niður á 2 skammta. Múkósín freyðitöflunrnar á að taka eftir máltíð.

Hversu langur tími líður uns verkun kemur fram:
Innan við 1 klst.

Verkunartími:
8-12 klst.

Þörf á að breyta mataræði meðan lyfið er tekið:
Engin.

Geymsla:
Geymist í lokuðum umbúðum við stofuhita þar sem börn hvorki ná til né sjá.

Ef skammtur gleymist:
Taktu lyfið um leið og þú manst eftir því. Ef stutt er til næsta skammts skaltu sleppa þeim sem gleymdist og halda áfram að taka lyfið eins og venjulega. Ekki taka tvo skammta í einu.

Hvernig á að hætta töku lyfsins:
Það má hætta að taka lyfið þegar þess er ekki lengur þörf, ef meðferðalengd fer yfir 7 daga skal hafa samband við lækni.

Ef tekinn er of stór skammtur:
Stakir skammtar sem eru litlu stærri en venjulega ættu ekki að valda óþægindum. Ef teknir eru stórir skammtar eða vart verður við óvenjuleg einkenni skal hafa samband við lækni.

Langtímanotkun:
Lausasölulyf eru ekki ætluð til langtímanotkunar, ef um bráða öndunarfærasjúkdóma er að ræða skal meðferðarlengd vera 5-7 dagar.


Aukaverkanir

Eins og við á um öll lyf getur þetta lyf valdið aukaverkunum en það gerist þó ekki hjá öllum.

Aukaverkun Tíðni Leitið til læknis vegna einkenna Leitaðu strax til læknis Hættu strax töku lyfs
Algeng >1% Sjaldgæf <1% Ekki þekkt Sem eru alvarleg Í öllum tilvikum    
Berkjukrampi          
Blæðing          
Brjóstsviði          
Hraður hjartsláttur, lágur blóðþrýstingur          
Höfuðverkur          
Mæði          
Ógleði, uppköst, magaverkur, niðurgangur          
Suð fyrir eyrum          
Útbrot, kláði, bjúgur og öndunarerfiðleikar      

Milliverkanir

Sjá öll lyf sem geta haft áhrif á

Má ekki nota með

Getur haft áhrif á


Varúð

Læknir sem ávísar lyfinu þarf að vita hvort
  • grunur leiki á um þungun eða að þú sért með barn á brjósti
  • þú sért með astma
  • þú sért með ofnæmi fyrir virka efninu eða einhverju hjálparefnanna
  • þú takir einhver önnur lyf

Meðganga:
Takmörkuð reynsla er af notkun lyfsins á meðgöngu.

Brjóstagjöf:
Ekki er vitað hvort lyfið berst í brjóstamjólk.

Börn:
Engar ákveðnar skammtastærðir eru gefnar upp fyrir börn.

Eldra fólk:
Venjulegar skammtastærðir.

Akstur:
Lyfið hefur ekki áhrif á aksturshæfni.

Áfengi:
Í litlum skömmtum hefur áfengi ekki áhrif á verkun lyfsins.

Íþróttir:
Leyft við æfingar og í keppni.


Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar um lyfið er að finna í SPC texta og í fylgiseðli lyfsins, sem má finna á heimasíðu Sérlyfjaskrá. Ef upplýsingar hér stangast á við þær upplýsingar ber að fara eftir SPC texta lyfsins og/eða fylgiseðli.