Locacorten Vioform (afskráð júl. 2007)
óskráð | Verðflokkur: $medicine.getPriceCategory().name | Lyfseðilsskylt
Virkt innihaldsefni: Flúmetazón Klíókínól
Markaðsleyfishafi: óskráð
Locacorten Vioform er notað við bólgum og exemi í hlust. Lyfið inniheldur tvö virk efni, sterann flúmetasón og sýkla- og sveppalyfið klíókínól. Flúmetasón er efnafræðilega skylt sterahormónum sem myndast í nýrnahettunum. Það hefur sömu áhrif og þessi hormón í líkamanum og er notað til þess að draga úr bólgum og ofnæmiseinkennum. Klíókínól hefur sýkla- og sveppadrepandi eiginleika og er gefið við ýmsum húðsýkingum.
Notkun á lyfi
Lyfjaform:
Eyrnadropar.
Venjulegar skammtastærðir:
2-3 dropar í hlust 2svar á dag í hámark 10 daga í senn.
Hversu langur tími líður uns verkun kemur fram:
Misjafnt eftir ástandi sjúklings.
Verkunartími:
Ekki að fullu þekktur.
Þörf á að breyta mataræði meðan lyfið er tekið:
Engin.
Geymsla:
Geymist í lokuðum umbúðum við stofuhita þar sem börn hvorki ná til né sjá.
Ef skammtur gleymist:
Notaðu lyfið um leið og þú manst eftir því. Ef stutt er til næsta skammts skaltu sleppa þeim sem gleymdist og halda áfram að nota lyfið eins og venjulega. Ekki nota tvo skammta í einu.
Hvernig á að hætta töku lyfsins:
Notaðu lyfið svo lengi sem læknir hefur sagt fyrir um. Einkenni sjúkdómsins geta komið fram aftur þegar notkun lyfsins er hætt. Ekki hætta notkun lyfsins nema í samráði við lækni.
Ef tekinn er of stór skammtur:
Stakir skammtar sem eru litlu stærri en venjulega ættu ekki að skapa vanda. Ef vart verður við einhver óvenjuleg einkenni skal hafa samband við lækni.
Langtímanotkun:
Locacorten Vioform skal ekki nota lengur en í 10 daga í senn.
Aukaverkanir
Aukaverkun | Tíðni | Leitið til læknis vegna einkenna | Leitaðu strax til læknis | Hættu strax töku lyfs | |||
---|---|---|---|---|---|---|---|
Algeng >1% | Sjaldgæf <1% | Ekki þekkt | Sem eru alvarleg | Í öllum tilvikum | |||
Staðbundin erting | ![]() |
![]() |
|||||
Útbrot og mikill kláði | ![]() |
![]() |
Milliverkanir
Sjá öll lyf sem geta haft áhrif á
Má ekki nota með
Getur haft áhrif á
Varúð
Læknir sem ávísar lyfinu þarf að vita hvort
- grunur leiki á um þungun eða að þú sért með barn á brjósti
- þú sért með langvarandi lifrar- eða nýrnasjúkdóm
- þú sért með ofnæmi fyrir virka efninu eða einhverju hjálparefnanna
- þú takir einhver önnur lyf
- þú sért með gat á hljóðhimnu
- þú sért með sýkingu í húð
Meðganga:
Takmörkuð reynsla er af notkun lyfsins hjá þunguðum konum.
Brjóstagjöf:
Ekki er vitað hvort lyfið berst í brjóstamjólk.
Börn:
Lyfið er ekki ætlað börnum yngri en 2ja ára.
Eldra fólk:
Venjulegar skammtastærðir.
Akstur:
Lyfið hefur ekki áhrif á aksturshæfni.
Áfengi:
Áfengi hefur ekki áhrif á verkun lyfsins.
Íþróttir:
Leyft við æfingar og í keppni.
Annað:
Væta má lyfið í grisju eða bómull og setja í hlust.
Nánari upplýsingar
Nánari upplýsingar um lyfið er að finna í SPC texta og í fylgiseðli lyfsins, sem má finna á heimasíðu Sérlyfjaskrá. Ef upplýsingar hér stangast á við þær upplýsingar ber að fara eftir SPC texta lyfsins og/eða fylgiseðli.