Lacosamide STADA
Flogaveikilyf | Verðflokkur: G | Lyfseðilsskylt
Virkt innihaldsefni: Lacosamíð
Markaðsleyfishafi: STADA Arzneimittel | Skráð: 14. október, 2020
Lacosamide STADA inniheldur virka efnið lacosamíð. Það tilheyrir flokki lyfja sem sem nefnast „flogaveikilyf” og eru notuð til að meðhöndla flogaveiki. Lacosamide STADA er notað eitt og sér í meðhöndlun á hlutaflogum (partial-onset) með eða án alfloga (secondary generalisation), hjá fullorðnum unglingum og börnum frá 4 ára aldri með flogaveiki. Við þessa gerð flogaveiki hafa flogaköstin fyrst aðeins áhrif á annan hluta heilans. Hins vegar geta þau farið seinna yfir stærra svæði í báðum hlutum heilans. Lacosamide STADA er ætlað sem viðbótarmeðferð með öðrum flogaveikilyfjum bæði í meðhöndlun á hlutaflogum með eða án alfloga hjá fullorðnum, unglingum og börnum frá 4 ára aldri með flogaveiki, og í meðhöndlun á frumkomnum þankippaflogum (primary generalised tonic-clonic seizures) hjá fullorðnum, unglingum og börnum frá 4 ára aldri með sjálfvakta flogaveiki. Það er sú tegund flogaveiki sem talið er að eigi sér erfðafræðilegar orsakir.
Notkun á lyfi
Lyfjaform:
Filmuhúðaðar töflur til inntöku.
Venjulegar skammtastærðir:
Lacosamid á að taka tvisvar sinnum á sólarhring, með u.þ.b. 12 klukkutíma millibili. Læknirinn skal ávísa viðeigandi lyfjaformi og styrkleika í samræmi við þyngd og skammt.
Hversu langur tími líður uns verkun kemur fram:
Áhrifa lyfsins fer að gæta eftir u.þ.b. vikutíma.
Verkunartími:
Misjafn eftir ástandi sjúklings.
Þörf á að breyta mataræði meðan lyfið er tekið:
Engin.
Geymsla:
Geymist í lokuðum umbúðum við stofuhita þar sem börn hvorki ná til né sjá.
Ef skammtur gleymist:
Ef sjúklingur tekur eftir að
skammtur gleymdist innan við 6 klst. áður en taka á næsta skammt skal leiðbeina sjúklingi að bíða og
taka næsta skammt lacosamids á venjulegum tíma. Sjúklingar skulu ekki taka tvöfaldan skammt.
Hvernig á að hætta töku lyfsins:
Sjúkdómseinkenni geta aftur komið fram þegar hætt er að taka lyfið, sérstaklega ef skammtar eru ekki minnkaðir smám saman. Ekki hætta töku lyfsins nema í samráði við lækni.
Ef tekinn er of stór skammtur:
Stakir skammtar sem eru litlu stærri en venjulega ættu ekki að skapa vanda. Ef teknir eru stórir skammtar eða vart verður við einhver óvenjuleg einkenni skal hafa samband við lækni strax.
Langtímanotkun:
Takmörkuð reynsla, mönnum virðist ekki hætta búin af langvarandi notkun.
Aukaverkanir
Alvarlegar aukaverkanir eru sjaldgæfar. Mjög algengar aukaverkanir, geta komið fyrir hjá fleiri en 1 af 10 einstaklingum, eru höfuðverkur, sundl, ógleði og tvínsýni. Fái sjúklingur flogakast, sem tekur lyfið reglulega við flogaveiki, skal hafa samband við lækni strax.
Aukaverkun | Tíðni | Leitið til læknis vegna einkenna | Leitaðu strax til læknis | Hættu strax töku lyfs | |||
---|---|---|---|---|---|---|---|
Algeng >1% | Sjaldgæf <1% | Ekki þekkt | Sem eru alvarleg | Í öllum tilvikum | |||
Aukin matarlyst | |||||||
Bjúgur | |||||||
Breytt húðskyn | |||||||
Hjartsláttartruflanir, hraður hjartsláttur | |||||||
Hægðatregða, uppköst, vindgangur | |||||||
Höfuðverkur, sundl | |||||||
Minnkuð kynhvöt eða getuleysi | |||||||
Munnþurrkur | |||||||
Mæði | |||||||
Ógleði | |||||||
Ósamhæfðar hreyfingar, skjálfti, tormæli | |||||||
Sjóntruflanir | |||||||
Skortur á einbeitingu, minnisleysi | |||||||
Svefnhöfgi, sundl, svimi, þreyta | |||||||
Útbrot, kláði | |||||||
Vellíðunartilfinning, rugl, skapstyggð | |||||||
Ölvunartilfinning |
Milliverkanir
Lyfið getur aukið áhrif áfengis og róandi lyfja.
Sjá öll lyf sem geta haft áhrif á
Má ekki nota með
Getur haft áhrif á
Varúð
Læknir sem ávísar lyfinu þarf að vita hvort
- grunur leiki á um þungun eða að þú sért með barn á brjósti
- þú sért með hjartasjúkdóm
- þú sért með langvarandi lifrar- eða nýrnasjúkdóm
- þú sért með ofnæmi fyrir virka efninu eða einhverju hjálparefnanna
- þú sért með sykursýki
- þú takir einhver önnur lyf
Meðganga:
Ekki er ráðlagt að taka Lacosamide STADA á meðgöngu.
Brjóstagjöf:
Brjóstagjöf er ekki ráðlögð á meðan Lacosamide Krka er tekið.
Börn:
Lacosamide STADA er ekki ætlað börnum yngri en 4 ára. Þetta er vegna þess að ekki er enn vitað hvort það muni virka eða sé öruggt hjá þessum aldurshópi.
Eldra fólk:
Minni skammtar eru oft notaðir.
Akstur:
Lyfið getur skert athygli og viðbragðsflýti og þar með aksturshæfni. Ekki aka bíl fyrr en reynsla er komin á það hvaða áhrif lyfið hefur.
Áfengi:
Ekki neyta áfengis meðan lyfið er tekið, áfengi getur aukið sljóvgandi áhrif lyfsins.
Íþróttir:
Leyft við æfingar og í keppni.
Nánari upplýsingar
Nánari upplýsingar um lyfið er að finna í SPC texta og í fylgiseðli lyfsins, sem má finna á heimasíðu Sérlyfjaskrá. Ef upplýsingar hér stangast á við þær upplýsingar ber að fara eftir SPC texta lyfsins og/eða fylgiseðli.