Elocon
Barksterar húðlyf | Verðflokkur: G | Lyfseðilsskylt
Virkt innihaldsefni: Mómetasón_
Markaðsleyfishafi: N. V. Organon
Mómetasón, virka efnið í Elocon, er barksteri með sömu áhrif og sterahormón sem myndast í nýrnahettunum. Elocon er notað útvortis við exemi, bólgum, kláða, psoríasis og ofnæmiseinkennum í húð. Sterar sem eru notaðir í húðlyf skiptast gróflega í 4 flokka eftir styrkleika. Mómetasón tilheyrir flokki 3, næststerkasta flokknum. Smyrslið er feitara en kremið og hentar því betur á mjög þurra eða hreistraða húð. Kremið er einkum notað á útbrot þar sem nægur raki er í húðinni.
Notkun á lyfi
Lyfjaform:
Útvortis feitt krem, smyrsli og húðlausn.
Venjulegar skammtastærðir:
Borið á í þunnu lagi einu sinni á dag. Hendur skal þvo eftir notkun.
Hversu langur tími líður uns verkun kemur fram:
Við psoríasis: Um 3 dagar. Við húðbólgum, t.d. vegna ofnæmis: 3 dagar-3 vikur.
Verkunartími:
Ekki að fullu þekktur.
Þörf á að breyta mataræði meðan lyfið er tekið:
Engin.
Geymsla:
Geymist í lokuðum umbúðum við stofuhita þar sem börn hvorki ná til né sjá.
Ef skammtur gleymist:
Notaðu lyfið um leið og þú manst eftir því. Ef stutt er til næsta skammts skaltu sleppa þeim sem gleymdist og halda áfram að nota lyfið eins og venjulega. Ekki nota tvo skammta í einu.
Hvernig á að hætta töku lyfsins:
Lyfið er venjulega aðeins notað þangað til að einkenni hafa minnkað eða eru horfin. Farðu eftir fyrirmælum læknis.
Ef tekinn er of stór skammtur:
Stakir skammtar sem eru litlu stærri en venjulega ættu ekki að skapa vanda.
Langtímanotkun:
Meiri hætta er á því að aukaverkanir lyfsins komi fram. Mómetasón getur valdið húðþynningu þegar það er notað útvortis lengi í senn.
Aukaverkanir
Aukaverkanir eru sjaldgæfar, sérstaklega þegar lyfið er notað í stuttan tíma. Við meðhöndlun á stórum húðsvæðum geta almenn áhrif barkstera komið fram. Afleiðingarnar geta verið kringluleitara andlitslag, beinþynning og hömlun á vexti. Þetta er hins vegar mjög sjaldgæft.
Aukaverkun | Tíðni | Leitið til læknis vegna einkenna | Leitaðu strax til læknis | Hættu strax töku lyfs | |||
---|---|---|---|---|---|---|---|
Algeng >1% | Sjaldgæf <1% | Ekki þekkt | Sem eru alvarleg | Í öllum tilvikum | |||
Almenn steraáhrif | |||||||
Húðþynning | |||||||
Sýking í húð | |||||||
Útbrot og mikill kláði |
Milliverkanir
Sjá öll lyf sem geta haft áhrif á
Má ekki nota með
Getur haft áhrif á
Varúð
Læknir sem ávísar lyfinu þarf að vita hvort
- grunur leiki á um þungun eða að þú sért með barn á brjósti
- þú sért með langvarandi lifrar- eða nýrnasjúkdóm
- þú sért með ofnæmi fyrir virka efninu eða einhverju hjálparefnanna
- þú sért með sykursýki
- þú takir einhver önnur lyf
Meðganga:
Nokkur hætta er á því að lyfið hafi áhrif á fóstur.
Brjóstagjöf:
Ekki er vitað hvort lyfið berst í brjóstamjólk.
Börn:
Venjulegar skammtastærðir. Gæta skal varúðar við notkun lyfsins.
Eldra fólk:
Venjulegar skammtastærðir.
Akstur:
Lyfið hefur ekki áhrif á aksturshæfni.
Áfengi:
Áfengi hefur ekki áhrif á verkun lyfsins.
Íþróttir:
Leyft við æfingar og í keppni.
Nánari upplýsingar
Nánari upplýsingar um lyfið er að finna í SPC texta og í fylgiseðli lyfsins, sem má finna á heimasíðu Sérlyfjaskrá. Ef upplýsingar hér stangast á við þær upplýsingar ber að fara eftir SPC texta lyfsins og/eða fylgiseðli.