Spurðu sérfræðinginn
Lyfjafræðingar Lyfju svara fyrirspurnum um flest allt sem lýtur að heilbrigði og heilsu.
Senda inn spurningu Sjá allar spurningar og svörÍ meltingarvegi okkar eru flestar örverur líkamans. Þessar örverur eru gjarnan nefndar þarmaflóra eða meltingarflóra.Meltingarflóran samanstendur af trilljónum örvera og inniheldur að minnsta kosti þúsund ólíkar tegundir af þekktum bakteríum. Þessar bakteríur búa yfir miljónum gena eða margfalt fleiri en okkar eigin gen. Lesa grein
Dr. Erla Björnsdóttur sem er klínískur sálfræðingur og doktor í líf- og læknavísindum og sérfræðingur í svefnrannsóknum veitir ráð um góðar svefnvenjur.
Það er ýmislegt sem þú getur gert til að bæta svefninn þinn. Nánar hér
Prima sjálfsprófin eru próf sem auðvelt er að framkvæma heima við. Viltu kanna stöðuna á D- vítamíni, járni eða glútenóþoli? Hjá okkur færðu einnig sjálfspróf til að mæla þvagfærasýkingu, breytingaskeið og streptókokka. Prófin eru með ISO9011 og ISO13485 vottun og eru CE merkt. Nánar hér
Lára G. Sigurðardóttir, læknir og doktor í lýðheilsuvísindum, fjallar hér um háan blóðþrýsting. Í fyrirlestrinum er farið yfir hvers vegna mikilvægt er að greina og meðhöndla hann og teknir fyrir lífshættir sem þarf að tileinka sér til að halda þrýstingnum góðum. Nánar hér
Heilbrigður lífsstíll er mikilvægur fyrir almenna heilsu og vellíðan. Hann felur í sér að taka ákvarðanir sem stuðla að líkamlegri og andlegri heilsu með því að huga að hollu mataræði, reglulegri hreyfingu, nægum svefni og stjórna streitu. Allt eru þetta þættir sem geta fyrirbyggt sjúkdóma. Lesa grein
Hér finnur þú öll skráð lyf á Íslandi sem seld eru í apótekum
Öruggasta leiðin til að losa sig við gömul lyf og lyf sem er ekki lengur þörf fyrir er að skila þeim í apótek til eyðingar. Það er mjög skaðlegt umhverfinu að henda lyfjum í rusl, vask eða klósett og því skiptir máli að farga þeim á öruggan hátt.
Stutt og hnitmiðað kennslumyndband um hvernig þú parar og tengir Phonak heyrnartækið þitt við Android appið.
Neföndun er ummyndandi. Hún bætir svefn, einbeitingu og frammistöðu í íþróttum, hjálpar til við að halda heilum og heilbrigðum tönnum og tannholdi, eykur líkur á að andlitið vaxi og þroskist rétt og stuðlar að beinum tönnum.
Við þekkjum vel orðið líkamsrækt og erum meðvituð um mikilvægi þess að hreyfa líkamann og gera æfingar sem efla líkamlega heilsu. Orðið geðrækt er kannski ekki alveg eins vel þekkt. Í stuttu máli felst geðrækt í því að hlúa að geðheilsunni eða andlegri heilsu með aðferðum sem miða að því að efla aðstæður, færni og lífsvenjur sem stuðla að aukinni andlegri vellíðan og heilsu.